Opnun tilboða
Yfirlagnir á Suðursvæði og Suðvestursvæði 2010, klæðing
Tilboð opnuð 4. maí 2010. Yfirlagnir með klæðingu á Suðursvæði og Suðvestursvæði árið 2010. Heildarlengd yfirlagna er u.þ.b. 46 km.
Helstu magntölur eru:
Yfirlagnir, klæðing (K1), með flokkaðri möl 24.000 m²
Yfirlagnir, klæðing (K1), án efnis 261.000 m²
Hjólfarafylling, klæðing (K1), án efnis 40.000 m²
Klæðing, bindi og viðloðunarefni 590 tonn
Verklok eru 1. september 2010.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Áætlaður verktakakostnaður | 143.200.000 | 100,0 | 31.549 |
Borgarverk ehf., Borgarnesi | 135.430.000 | 94,6 | 23.779 |
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ehf., Selfossi | 132.925.000 | 92,8 | 21.274 |
Klæðir ehf., Egilsstöðum | 122.445.000 | 85,5 | 10.794 |
Bikun ehf., Kópavogi | 117.447.000 | 82,0 | 5.796 |
Slitlag ehf. og co., Selfossi | 111.651.000 | 78,0 | 0 |
Bikun ehf. skilað einnig inn frávikstilboði.